|
|
|
Í þættinum
ræddu þau Halldór Hauksson útvarpsmaður,
Harpa Þórsdóttir forstöðumaður
Hönnunarsafns Íslands og Silja Aðalsteinsdóttir
útgáfustjóri hjá Máli og menningu
um Þjóðmenningarhúsið; sýningar
starfsemi og húsið sjálft, við Þórunni
Sigurðardóttur umsjónarmann þáttarins.
Einnig var útvarpað viðtali sem Þórunn
átti við Markús Örn Antonsson forstöðumann
Þjóðmenningarhússins um yfirstandandi sýningar,
leiðsögn, fræðslu, aldarafmæli starfsemi
í húsinu og fleira.
Í þættinum
ræddu þau Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur,
Anna Ólafsdóttir Björnsson sagnfræðingur
og Kristján Sigurðsson doktorsnemi í mannfræði
við Háskóla Íslands um Þjóðmenningarhúsið;
sýningar, starfsemi og húsið sjálft, við
Þórunni Sigurðardóttur umsjónarmann
þáttarins.
Þátturinn
var sendur út frá sýningu Náttúrufræðistofnunar
Íslands Surtsey - jörð úr ægi á
rishæð Þjóðmenningarhússins. Upptakan
geymir viðtal þáttastjórnanda, Erlu Sigurðardóttur,
við Guðrúnu Garðarsdóttur sem þá
var settur forstöðumaður í Þjóðmenningarhúsinu.
|
|