|
|
Útgáfutónleikar MIRI, ásamt Bergi Ebba, Loja og Snorra Helgasyni
27. ágúst 2010
Útgáfutónleikar Miri fóru fram í Þjóðmenningarhúsinu föstudagskvöldið 27. ágúst. Þetta voru aðrir útgáfutónleikar hljómsveitarinnar í tilefni útgáfu hennar á breiðskífunni Okkar. Þeir fyrri fóru fram á Seyðisfirði þar sem fólk á öllum aldri fyllti húsakynni Herðubreiðar.
Í höfuðborginni voru útgáfutónleikarnir ekki síður veglegir því ásamt Miri stigu á stokk Bergur Ebbi Benediktsson, Snorri Helgason og Loji Höskuldsson og upptökustjórinn sjálfur, Curver Thoroddsen, kom fram með hljómsveitinni ásamt fleiri gestaleikurum.
Þetta voru síðustu tónleikar Miri í bili en trommuleikari sveitarinnar heldur til Danmerkur í byrjun september.
|
Jazzhátíð Reykjavíkur í Þjóðmenningarhúsinu
14./18./20./22. ágúst 2010
Jazzhátíð Reykjavíkur fór fram á fjölda tónleikastaða en hér í Þjóðmenningarhúsinu voru haldnir fernir tónleikar, auk opnunarhátíðarinnar. Þeir sem komu fram á tónleikum hér í Þjóðmenningarhúsinu voru:
Agnar Már Magnússon píanóleikari, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson bassaleikari og Magnús Trygvason Eliassen trommuleikari með þakkargjörð til Bill Evans jazzpíanista. Sérstakir gestir voru söngvararnir Kristjana Stefánsdóttir, Ragnheiður Gröndal og Ragnar Bjarnason.
Django Bates einleikari á píanó lék eigið efni.
Píanistinn Jean Marie Machado lék einleik og leiddi auk þess íslenska kollega sína í gegnum hluta verkaskrár sinnar.
Ástvaldur Zenki Traustason píanóleikari frumflutti efni af nýjum geisladiski sem ber nafnið Hymnasýn. Meðreiðarsveinar voru þeir Scott McLemore á trommur og Þorgrímur Jónsson á bassa.
Heimasíða jazzhátíðar er á þessari slóð: http://www.reykjavikjazz.is/wp/
|
Skemmtileg Menningarnótt að baki
21. ágúst 2010
Þjóðmenningarhúsið iðaði af lífi á Menningarnótt. Gestir flykktust á fjölbreytta tónlistardagskrá sem stóð yfir frá kl. 14 og langt fram á kvöld. Ekkert lát varð á heimsóknum í húsið fyrr en flugeldasýningin hófst kl. 23. Að vanda var enginn aðgangseyrir að tónleikum eða sýningum og fjölskyldufólk nýtti sér barna- og fjölskyldunálgun sem útbúin hefur verið fyrir flestar sýningar í húsinu.
Fyrstur á svið var dægurlagahópurinn Blikandi stjörnur sem söng þekkt íslensk dægurlög af sannkallaðri innlifun. Blikandi stjörnur hafa starfað á vegum Hins hússins síðan árið 2000 undir stjórn Ingveldar Ýrar Jónsdóttur og komið víða fram. Þvínæst lék Mosana gítardúóið, skipað klassísku gítarleikurunum Svani Vilbergssyni og Priska Weibel, nokkur verk frá barokk, klassíska og rómantíska tímabilinu auk samtímatónlistar. Sönghópurinn Spectrum og Ingveldur Ýr flutti útsetningar við þekkt dægur- og söngleikjalög, auk íslenskra sönglaga, við píanóundirleik fyrir troðfullum sal. Poppararnir í hljómsveit Gísla Helgasonar, Föruneytið, stigu því næst á stokk og flutti eigin lög í bland við alþekkt lög, þar á meðal sígild lög úr Eyjum. Lokatónleikarnir voru svo með söngkonunni Ragnheiði Gröndal ásamt hljómsveit og fluttu þau íslensk þjóðlög í spennandi og ferskum heimstónlistarbúningi.
Veitingastofan var vel nýtt enda veitir hún rólegt afdrep mitt í öllum skarkalanum. Þjóðmenningarhúsið þakkar fyrir innlitið. |
Halldór Laxness og hinir Síðari-daga heilögu: staðreyndir á bak við skrif Paradísarheimtar
17. ágúst 2010
Í tilefni af því að í ár eru 50 ár liðin frá því að skáldsaga Halldórs Laxness, Paradísarheimt, kom út, flutti Fred E. Woods prófessor fyrirlestur um heimsóknir Halldórs til Vesturheims, tengsl hans við Mormónatrúna og skrif skáldsögunnar Paradísarheimt í í Bókasal Þjóðmenningarhússins þann 17. ágúst 2010.
Fred E. Woods vinnur að rannsóknum á mormónunum sem fluttust héðan til vesturheims og hefur frætt nemendur á sumarnámskeiðum við Háskóla Íslands um þetta efni frá ýmsum sjónarhornum. Fred E. Woods er með B.S. gráðu í sálfræði (1981) og M.S. gráðu í alþjóðasamskiptum (1985) frá Brigham Young University. Árið 1991 lauk hann doktorsgráðu í miðausturlandafræðum frá University of Utah þar sem hann lagði áherslu á hebresku biblíuna. Hann kenndi við Rick College (sem nú heitir BYU-Idaho) frá 1993-1998 og síðasta áratuginn hefur hann verið prófessor við Brigham Young University við deild þeirra um trúarsögu og kennisetningar Mormónakirkjunnar. Fred E. Woods hefur haldið fyrirlestra við fjölmarga háskóla í Bandaríkjunum sem og annars staðar í heiminum. Bók Woods, Eldur á ís: Saga hinna íslensku Síðari daga heilögu heima og að heiman kom út í þýðingu Friðriks Rafns Guðmundssonar hjá Háskólaútgáfunni árið 2007.
Fred sló botninn í fyrirlestur sinn með því að frumflytja eigið lag og texta út frá hugleiðingum sínum um hvað heillaði Halldór Laxness við mórmónatrúna og fólkið sem snerist til hennar og varð til þess að hann ritaði skáldsögu um efnið. Lagið nefnir Fred Paradísarheimt og á myndinni sést hann munda gítarinn og búa sig undir sönginn.
|
Íslenski safnadagurinn í Þjóðmenningarhúsinu – fyrir fjölskyldur
11. júlí 2010
Íslenski safnadagurinn er haldinn árlega annan sunnudag í júlí. Fjölmörg söfn og sýningasetur tóku þátt í deginum í ár eins og endranær og yfirskrift dagsins var sem fyrr: – fyrir fjölskyldur. Þjóðmenningarhúsið bauð íslenskar barnafjölskyldur sérstaklega velkomnar þennan dag. Enginn aðgangseyrir var að sýningum og gestir gátu nýtt sér barna- og fjölskyldunálgun sem útbúin hefur verið fyrir flestar sýningar í húsinu.
Efni yfirstandandi sýninga er fjölbreytt; íslenskar kvikmyndir, ljósmyndasýningin Íslendingar, handritin frá miðöldum, kúla úr þæfðri ull í ýmsum myndum og fleira.
Barnahorn er á kvikmyndasýningunni, spæjaraleikur á ljósmyndasýningunni og leiðsagnarhandrit um goðsögulega dreka og fleira á handritasýningunni. Einnig er hægt að leika sér með orðapúsl á ísskápsseglum.
Undirtektir voru með miklum ágætum því talsverður fjöldi fólks, fjölskyldur og einstaklingar, skoðuðu húsið og sýningar þennan dag.
|
|