|
|
Útskriftartónleikar Listaháskóla Íslands
25. apríl - 6. júní 2012
Nú í ár halda 23 nemendur tónlistardeildar Listaháskóla Íslands útskriftartónleika sína, flestir á timabilinu 25. apríl - 6. júní. Tónleikarnir eru haldnir í nokkrum tónleikasölum, og verða fimm þeirra haldnir í bókasal Þjóðmenningarhússins. Fyrr á skólaárinu hélt Adriana Pylyp sína tónleika hér.
Hér á eftir er skrá yfir tónleikana sem verða haldnir í bókasal. Um leið og nánari upplýsingar birtast á vef Listaháskólans verður hlekkur virkjaður frá viðkomandi tónleikum á skránni hér að neðan yfir á síðu Listaháskólans um þá tónleika.
Þjóðmenningarhúsið:
Miðvikudagur 25. apríl kl. 20:00: Harpa Jóhannsdóttir, mennt og miðlun
Miðvikudagur 9. maí kl. 20:00: Petter Ekman, tónsmíðar
Fimmtudagur 10. maí kl. 20:00: Bogi Haraldsson, blokkflauta
Laugardagur 12. maí kl. 18:00: Chrissie Telma Guðmundsdóttir, fiðla. (Diplóma)
Miðvikudagur 6. júní kl. 20:00: Margrét Kristín Blöndal, tónsmíðar
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. |
Framhaldsprófstónleikar: Auður Ýr Sigurðardóttir, fiðla
17. maí 2012
Framhaldsprófstónleikar Auðar Ýrar Sigurðardóttur
frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar verða í bókasal Þjóðmenningarhússins á fimmtudag, uppstigningardag, kl. 16. Auður mun flytja verk eftir Jón Nordal, Bach, Saint-Saëns, Piazzolla og Sarasate. Allir eru velkomnir á tónleikana, enginn aðgangseyrir.
Auður Ýr Sigurðardóttir hóf nám í fiðluleik 5 ára að aldri hjá Sigríði Helgu Þorsteinsdóttur við Suzukideild Tónskóla Sigursveins. Síðar lærði hún hjá Helgu Steinunni Torfadóttur og Aðalheiði Matthíasdóttur en undanfarin ár hefur kennari hennar verið Greta Guðnadóttir.
Auður Ýr hefur tekið þátt í fjölda hljómsveitar- og samspilsverkefna á vegum Tónskólans þ.á m. hefur hún spilað undanfarin 6 ár með Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna. Hún hefur sótt námskeið á vegum Tónskólans, t.d. masterklassa hjá Ara Þór Vilhjálmssyni og spunanámskeið hjá Daniel Cassidy. Á síðasta ári tók Auður Ýr þátt í flutningi á Carmina Burana eftir Carl Orff með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og mun á komandi hausti spila í Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
|
Föst
leiðsögn á ensku, leiðsögn
fyrir hópa
Vetur 2011 - 2012
Hópar
geta pantað leiðsögn um sýningar hússins. Yfir vetrarmánuðina, frá september til og með maí, er jafnframt föst leiðsögn á
ensku um sýninguna Handritin, og fleiri sýningar ef áhugi er á, kl. 15:00 á mánudögum og föstudögum. (Sjá nánar undir Leiðsögn á forsíðu).
Yfirstandandi sýningar
eru: Handritin, Þúsund ár, Óskabarn - æskan og Jón Sigurðsson og Bókasalurinn. Auk þess eru breytilegar myndlistarsýningar í
verslun og veitingastofu. (Sjá nánar undir Sýningar á efnisyfirliti á forsíðu). |
Nemendaheimsóknir
á sýningar
Vetur 2011 - 2012
Nemendur
á öllum skólastigum eru velkomnir í Þjóðmenningarhúsið
í fylgd kennara sinna. Boðið er uppá leiðsögn
safnkennara/ sérfræðings um sýningar. Yfirstandandi
sýningar eru: Handritin, Þúsund ár, Óskabarn - æskan og Jón Sigurðsson og Bókasalurinn.
Á handritasýningunni býðst nemendum að skrifa með fjaðurstaf
á kálfskinnsbút. Á Óskabarni kynnast nemendur uppvexti, mótunarárum og baráttumálum Jóns Sigurðssonar, setja sig í hans spor og velja sér verðugt baráttumál fyrir bættu samfélagi í dag. Á Þúsund árum er hægt að velja á milli tvennsk konar verkefna. Annars vegar er miðað við staka heimsókn með fræðslu og hópverkefni á staðnum og hins vegar er miðað við að í kjölfar heimsóknar vinni nemendur verk út frá einu listaverkanna á sýningunni.
Sjá lýsingu á
nemendaheimsókn á handritasýninguna hér
>>.
Sjá lýsingu á nemendaheimsókn á sýninguna Óskabarn hér >>.
Sjá lýsingu á nemendaheimsókn á sýninguna Þúsund ár hér>>.
Nánari
upplýsingar um bókun heimsókna hér >>.
|
|